GÓP-fréttir  
	
	Forsíða 
	 
	  
	  
	
	 | 
    
	Meiningar 
	 
      Sjá einnig 
	
	 | 
  
  
    6. des. 
2018  | 
    Frá ölstofunni Klaustri 
Í vinnutíma sínum á Alþingi voru þar nokkrir þingmenn og héldu hávær ræðuhöld um öryrkja og annað undirmálsfólk, sem jafnvel væri svo veruleikafirrt að ætla sér á þing, og um kvenþingmenn og kvenráðherra sem þessir kraftaverkamenn væru reiðubúnir lækna með typpum sínum. Einn þeirra hafði verið utanríkisráðherra í fyrri ríkisstjórn og lýsti því hvernig hann hafði þá gert samstjórnarflokki greiða í ráðningu sendiherra uppá að eiga sjálfur slíkan greiða inni þegar þar að kæmi.  
Öryrki einn var á næsta borði og tók ræðurnar upp á símann sinn. Þegar upp komst um þessar montræður sögðu þeir logið upp á sig. Þegar svo upptakan heyrðist breyttust viðbrögðin.  
Þá ákváðu þeir að hafa verið að ljúga upp á sjálfa sig og kærðu öryrkjann fyrir upptökuna. Það leiddi auðvitað ekki til neins en mun tryggja að Klaustur-minningin komi í veg fyrir að fagurgali næstu kosningasóknar þeirra hljómi sannfærandi. 
    
      
        Kostur stefnu svo er sá 
          sama hvort á klifir: 
          kjörtöl engin kynna þá - 
          Klaustur-málið lifir.  
       
      Þrátt fyrir margmanaðar atlögur að öryrkjanum hrundi af flokki þeirra fylgið.  
    Þeir hugsuðu upp björgunaraðgerðir. Þeir yrðu  að róta ryki yfir þessa hörmulegu uppljóstranir um sjálfa sig. Niðurstaðan varð sú að taka upp innihaldslaust orðaskak í 200 klukkustundir til að tefja þingmeðferð almanna hagsmunamáls.   | 
  
  
    5. sept. 
      2016  | 
    Geymsla fjár í 'skattaskjólum' er  þjófnaður úr sameign Íslendinga. 
      Athugaðu - að engu skiptir hvort greiddur er af því skattur.
      
    
      Stutt skýringarsaga um 
        'löglegan' sjálfvirkan þjófnað í skattaskjólum 
              A og B áttu saman forkaupsrétt á húseign.  
        Verð húseignarinnar var fastsett árið 2008. 
        Þetta var fjölbýlishús með þakparadís.  
        Undirskrifað verð var kr. 1000 milljónir.  
        Því miður var ekki unnt að framkvæma kaupin fyrr en tveimur árum síðar.  
        A og B höfðu báðir handbærar 500 milljónir í reiðufé.  
        A lagði sinn hálfa milljarð í Landsbankann og hafnaði ráðleggingum um að geyma féð í skattaskjóli. 
        B átti reikning á Seyschelle-eyjum. Hann keypti evrur fyrir alla upphæðina og lagði þar inn.  
      Í byrjun árs 2010 var kaupdagurinn.  
        A tók út sinn hálfa milljarð ásamt vöxtunum til að greiða sinn hlut. 
      B tæmdi skattaskjólssreikninginn sinn og hafði þá í vasanum heilan milljarð íslenskra króna - því gengið hafði fallið um helming. Þó er þetta ekki alveg nákvæmt því hann hafði greitt skatta af upphæðinni auk þess sem hann hafði fengið fimmtungs álag fyrir að koma heim með gjaldeyrinn.  
      Höfum smáatriðin utan myndar. 
        A hafði samtals 600.000 
        B hafði samtals 1.200.000  
        Eftir kaupin átti A handbær 100.000 
        en B átti 700.000 - þ.e. hann átti 600.000 meira. 
      Hvaðan komu þessi 600 þúsund? 
        Skoðum stöðu B. 
        Ef húsakaupin hefðu átt sér stað í Evrulandi - eða í Dollaralandi - hefði hann áfram átt nokkuð nákvæmlega fyrir sínum helmingi og ekkert umfram það. Vegna gengisfalls íslensku krónunnar hefði A hins vegar aðeins átt fyrir fjórðungi kaupverðsins því hans hálfi milljarður hefði í bankanum rýrnað um helming til kaupa á gjaldeyrinum.  
      Nei - það er aðeins á íslandi sem afgangurinn verður. B á nú 600 þúsund íslenskar krónur umfram þann hlut sem hann hefði átt - ef hann hefði farið að reglum ríkisins sem öllum var gert að hlíta.  
      Þjóðareign Íslendinga er X. Nú hefur B komist yfir 600 þúsundum meira af þeirri eign heldur en hann hafði fyrir hrun. Þannig minnkar um 600 þúsund sá þjóðarauður sem öllum hefði annars staðið til boða. Hugsum okkur að ein eyjan á Breiðafirði sé föl - einmitt fyrir 600 þúsund krónur - og - a-ha - B kaupir hana. Nú á hann jafnmikið fé eftir og A. Þegar staða þeirra er borin saman hefur B fengið eyjuna á Breiðafirði fyrir EKKERT. 
      B hefur stolið 600 þúsundum af þjóðarauðnum.  
      Þeir sem eiga fjármuni utan landsteina lækkandi gengis eru sjálfvirkt þjófar á því landi. Vegna hins sjálfvirka þjófnaðar geta þeir tekið sér fleiri skóflur af sameiginlegum auði landsmanna.  
        Engu máli skiptir hvort þeir greiddu einhvern skatt - eða höfðu hreinlega gleymt eign sinni.  
      Þekkirðu einhvern sem á gjaldeyrissjóð í skattaskjóli upp á 40 milljónir eða jafnvel upp á heilan milljarð?  
        Þú átt auðvelt með að reikna út hversu miklu þeir hafa náð að stela úr þjóðarauðnum. Það er grátbroslegt að þeir skuli svo komast upp með að kalla þetta 'löglegt' athæfi.       
      Þetta er auðvitað enn alvarlegra þegar almenningi er bannað að eiga gjaldeyri - er með lögum knúinn til að skila honum strax inn í bankakerfið - en þeir sem setja lögin geyma fjármuni sína í skattaskjólum - og þykjast hafa greitt skatta - og allt sé löglegt.   | 
  
  
    11. nóv. 
	2015 | 
    
	Enn halda yfirlýsingar 
	oddvita landsins ekki vatni.   
	Í Hringbraut 11. nóv. 2015
	
	skrifar Thomas Möller - öryggisafrit er hér í
	
	pdf-skrá - 
	um framkomnar fullyrðingar oddvitans um ágæti krónu umfram 
	evru. 
	
		Enn fer í geitarhús gæðingur landsins 
		og gáir til ullar - 
		þau eru örlögin íslenska grandsins 
		að oddvitinn bullar.  
	 
	 | 
  
  
    | 
	 6. nóv. 
	2015  | 
    
	
	Frétt í Stundinni 
	Þjóðkirkjuprestur kallar eftir því að fólk sniðgangi Stöð 
	2  
	vegna þeirrar afstöðu eins þáttarstjórnenda  
	að miðill seldi vöru byggða á blekkingu.Flestir 
	prestar hafa vit á að tjá sig í lágmarki um handanheima. Nú er öllu hugsandi 
	fólki ljóst að kirkjan hefur frá upphafi verið mikilvirkasti söluaðili 
	svikinnar vöru. Sala á vinsemd við guðið hefur skilað peningum, jörðum og 
	valdi sem kirkjan hefur valsað í. Á skuldadögum verður henni gert að skila 
	öllum eignum til baka. Prestar fyrri tíma vissu ekki betur en nú á tímum 
	þarf þekkingarleysið að sitja í fyrirrúmi til að munnurinn boði viðtal við 
	guði og aðra drauga.  
	Um miðlatækni er fróðlegt að lesa hér á Wikipedia: 
	>> 
	https://en.wikipedia.org/wiki/Cold_reading 
	  | 
  
  
    3. ágúst 
	2015 | 
    
	Jimmy Carter, fyrrum forseti 
	Bandaríkjanna lýsir stjórnarfarinu þar: 
	
	
	Fámennisstjórn með stjórnmálamennina í vasa þeirra ríkustu.
	Jimmy Carter: The U.S. Is an
	
	Oligarchy With Unlimited Political Bribery 
	
		Auði látið allt í té - æ er mútan þerna - heldur einhver að það sé öðruvísi hérna ?!!  
	 | 
  
  
    | 
	 1. ágúst 
	2015  | 
    
	Skattaálagningin komin og forsætisráðherrann náði að lækka sinn um góðan 
	helming  
	
	
	með því að framlengja ekki auðlegðarskattinn 
		Sitjum að völdum og sjálfsagt að 
		segja þá öðrum að borga, 
		eiginn skatt burtfella - auðvitað. 
		- Auðsauka ljúft er að torga.  
	 
	 | 
  
  
    3. júlí 
	2015 | 
    
	Össur Skarphéðinsson reiknar út Stöðugleikafrumvarp 
	ríkisstjórnarinnar: 
	
	
	Kröfuhafar fá fimm sinnum hærri leiðréttingu en húsnæðisskuldarar
		Enn og aftur stakk í stúf 
		stöðugleikafloppið: 
		hrægammarnir hirða kúf 
		- heldur betur sloppið! 
	 
	 | 
  
  
    | 
	 5. júní 
	2015  | 
    Fjármálaráðherrann (Bjarni 
	Benediktsson) segir - í miðju verkfalls-ströggli: 
	Það geta ekki endalaust allir fengið leiðréttingar
		Senn er komið hrímkalt haust 
		- hugsið um það, Íslendingar, - 
		ekki geta endalaust 
		allir fengið leiðréttingar. 
	 
	 | 
  
  
    29. 
	jan. 
	2015 | 
    
	Innanríkisráðherrann hlýtur lof og virðing sjálfstæðiskvenna
	
	
		Hún sem nýskeð flatast fór  
		fyrir svikaiðju 
		á nú sæmd í sínum kór - 
		siðleysinu miðju. 
	 
	 | 
  
  
    | 
	 5. jan. 
	2015  | 
    Guðmundur Andri 
	Thorsson - um frelsishetjuna  
	Í
	
	pistli dagsins í Fréttablaðinu í dag, Óvinir ríkisins, skoðar 
	Guðmundur Andri bók Styrmis Gunnarssonar um eigin njósnastörf í annarra 
	þágu. (Öryggisafrit er 
	hér!!)
		Sumt því miður segja þarf 
		- síst má öxlum yppta - 
		Styrmir valdi vitlaust starf 
		- vill svo gjarnan skipta. 
		Sumt því miður segja þarf 
		- síst má hafa öxlum yppt - 
		Styrmir valdi vitlaust starf 
		- vill svooo gjarnan hafa skipt. 
	 
	 | 
  
  
    27. júlí 
	2014 | 
    
	 Morðsókn Ísraela á Gaza  
	
		Reuven Moskovitz, a Holocaust Survivor,  protests against the holocaust the state of Israel is performing on 
			Gaza.
  And now the youngs of Israel ask: "What's a holocaust ?!! Us are fine - with guns and gel - and Gazans soon are lost !!" 
	 
	 | 
  
  
    | 
	 1. júlí 
	2013  | 
    Samkunda alþingismanna 
	hefur talað:
		
		
		Evrópuvaktin 30. júní 2013 klukkan 18:53 
		Þing Evrópuráðsins samþykkti samhljóða (með 86 atkvæðum) ályktun 
		föstudaginn 28. júní um að halda beri pólitískri ábyrgð og refsiábyrgð 
		aðskildum. 
	 
	Þegar Geir var kærður gladdist ég fyrir hans hönd. Hann 
	mundi slá sér upp með því að óska eftir því að Landsdómur kannaði til 
	þrautar hvort og þá hvað hefði misgerst á hans vakt og hvernig mætti af því 
	læra komandi kynslóðum til leiðbeiningar. Þetta mundi hann gera þjóðinni til 
	gagns og ekki standa í neinu varnarstappi því Landsdóms væri einnig að sjá 
	til þess að hann nyti sannmælis. Þarna var hann í andyri stærsta hlutverks 
	Íslandssögunnar - en missti af því. Setti bara upp flokkspólitísku gleraugun 
	- eins og alþingismenn læra fyrst af öllu.  
	Engir alþingismenn vilja bera beina ábyrgð á neinu sem þeir gera. Pólitísk 
	ábyrgð með kjöri eða ekki kjöri er ábyrgðarleysi á háum launum. Því var 
	auðvitað upplagt að leita álits annarra alþingismanna - til dæmis samnefnara 
	allra alþingismanna í Evrópu. Ekki fer milli mála hvað þeir vilja. Nú hafa 
	þeir talað. Þeir vilja ekki láta dæma sig eða yfirleitt hnýsast í verk sín. 
	Þetta minnir á skúrkinn sem hlaut lítinn dóm og klagaði dóminn fyrir 
	skúrkasamfélaginu sem var honum alveg sammála og fordæmdi dóminn.  
	Það eina sem stendur upp úr er Þuríður Backman sem er tilbúin til að bera 
	ábyrgð á sjálfri sér. 
	  | 
  
  
    
	30. sept. 
	2012 | 
    "Hefðbundin" útför 
	Jóhanna Harðardóttir, blaðamaður og Kjalnesingagoði ritaði pistil undir 
	þessu nafni í Mbl. þann 14. sept. sl.. Þar velti hún gangstéttarhellum venja 
	og siða við útfarir og undirstrikaði mikilvægi þess að menn geri ljósan 
	vilja sinn um sína eigin útför.  
	Þetta var góð grein og í framhaldi af henni kemur hér uppskriftin að útför 
	GÓP:
		Hér er komin - sett með sinni, 
		- síðar þarf ei um að skottast - 
		uppskriftin að útför minni 
		eftir að ég dauður vottast: 
	 
	1. Engin trúmál: 
	
		Alveg ljóst er fyrsta fallið 
		feitum ritað penna rauðum: 
		hvorki prests né kirkjukallið 
		komi nokkuð að mér dauðum. 
	 
	2. Ódýr pappakassi: 
	
		Dulítið af dagsins slæðum 
		dugði mörgum fornum kappa 
		- hæfir mér í köldum klæðum 
		kassi gjör úr stinnum pappa. 
	 
	3. Strax bál og vindar: 
	
		Liðsforingi lífs míns sveitar 
		lætur undir öllu kynda, 
		afgangs tekur agnir heitar 
		út í bjarta sali vinda. 
	 
	4. Fagnaður síðar - t.d. í næstu þrettándaferð í 
	Þórsmörk: 
	
		Þeir sem eiga góðar gengnar 
		gamanstundir sér í minni 
		heiman - og á fjöllum fengnar - 
		fá sér einhvers staðar inni, 
		lífga sína gömlu gleði 
		glettnir minnast bross og ferðar 
		- eru svo með sætu geði  
		sælar áætlanir gerðar.  
	 
	 | 
  
  
    | 2012-05-19 | 
    Laugardagur 19. maí 2012 - Ólafur 
	Ragnar Grímsson forseti Í samfellt fjögur ár 
	hafa allir fjölmiðlar og næstum allir fréttamenn, grínteiknarar og 
	skopgerðarmenn ausið leðjunni yfir forsetann - sem bara hefur brosað við 
	þeim. Nú er aðdragandi nýrra forsetakosninga og þess von að leðjan aukist 
	enda enginn maður með mönnum nema hann taki þátt í austrinum. Það verður 
	fróðlegt að sjá hvað verður. Alls staðar hefur hann staðið sig betur heldur 
	en ég mundi hafa gert. Það gleður mig að hann gaf kost á sér til endurkjörs 
	- og ég styð hann heils hugar. 
	 
		Ólaf hæfir hæst við stafn 
		hann á ferðir góðar, 
		hám og lágum hógvært jafn 
		heiðrar vilja þjóðar. 
	  
	 | 
  
  
    | 2011-04-29 
	    | 
    Eðlið   
	Sjá hér dagsins
	
	DV-leiðara eftir Jón Trausta Reynisson  
	Einnig má sækja hann á pdf-skrá með því að hægri-músa >>
	hér  
	 | 
  
  
    | 2011-04-17 | 
    Sunnudagur 17. apríl 2011 - Fallinn 
	Moggi Það var gaman að sjá hvernig Mogginn tók 
	framförum þegar Þjóðviljinn féll frá. Hann fór að taka til varna fyrir 
	almenning þá sjaldan sem það ekki skaðaði stefnu Flokksins. Nú er Mogginn 
	hættur að vera til. Ég sakna hans.  
	Undir sama nafni gefa nú eigendur Íslands, útvegsmenn, út 
	miðil. Hann hefur það eina markmið að gæta kvótans. Nú er kvótinn eina 
	stóreign þjóðarinnar. Koma skal í veg fyrir að ríkisstjórnin fái frið til að 
	efna það kosningaloforð sitt að taka sanngjarnt gjald í ríkissjóð fyrir 
	leyfi til veiða.    
	Það er auðvitað kostur hve málflutningur útvegsmiðilsins 
	er einsleitur, hvernig hann atar auri persónur annarra sjónarmiða og hvernig hann afflytur 
	fréttir sem 
	honum eru ekki þóknanlegar.  
	Enginn þarf að 
	velkjast í vafa um markmiðið - að losna við þá ríkisstjórn sem ógnar 
	"eigendunum". 
	Þessi miðill heitir vissulega gamla nafninu og því halda 
	sumir ennþá að þar sé ef til vill stundum hugsað um þjóðarhag.  
	Því miður.  
	Þjóðarhagur fer ekki saman við hag "eigenda" kvótans.  
	
		Einu snúið, öðru spillt, 
		allt er kvótaseðill. 
		Íslendingum eykur illt 
		útvegsmannableðill. 
	 
	 | 
  
	
    | 2011-04-17 | 
    Sunnudagur 17. apríl 2011 - Besti 
	flokkurinn í tiltektinni í Reykjavík 
	Flokkshagsmunir ríða feitustum hestum í stjórnum og ráðum lands og sveita. 
	Eftir hrunið áttar fólk sig hægt og bítandi. Hver sá flokkur sem setið hefur 
	að kjötkötlum stjórna hefur notfært sér bókhaldsbrellur til að þykjast vera 
	fjármálavandanum vaxinn. Enginn þeirra hefur reynst vera það. Sístir þeir 
	sem eru fulltrúar landseigendanna - enda þeir mestir sérfræðingar í að ota 
	eigin tota.  
	Það þurfti óbundinn hóp til að opna mál Orkuveitu 
	Reykjavíkur - áður en þar var komið í algjört óefni. Sennilega væri ráð að 
	fá sams konar hóp í landsstjórnina í eitt eða tvö kjörtímabil. Fólk sem er 
	óbundið verktökum og peningaöflum og hugsar aðeins um að vinda ofan af 
	vitleysunum. Fólk sem nógu andlega sterkt til að standa vaktina þrátt fyrir 
	það óheyrilega aurkast sem tíðkast í umræðu hinnar íslensku stórfjölskyldu. 
	
		Besti flokkur! Þökk sé þér 
		að þú ert engum líkur! 
		- annars hefði orðið hér 
		Enron Reykjavíkur. 
	 
	 | 
  
  
    | 2011-02-03    | 
    Fimmtudagur 3. febrúar 2011 - 
	Hæstaréttarúrskurður 
	Nokkrir einstaklingar í stöðu dómara við Hæstarétt Íslands komu sér 
	saman um að ógilda kosningu til Stjórnlagaþings sem fram hafði farið gegn 
	eindreginni mótspyrnu háværra fylgismanna Sjálfstæðisflokksins og 
	Framsóknarflokksins. Þeir flokkar hafa raðað sínum fulltrúum á jötu 
	Hæstaréttar. Það skal tekið fram að enginn nefndra hnökra hafði orðið 
	tilefni ábendinga um - ekki einu sinni grunsemd um að einhver hefði haft rangt við. 
	Sjá hér
	
	umsögn Reynis Axelssonar stærðfræðings um rökræna undirstöðu 
	úrskurðarins.
		Hæstaréttardómarar hafa orðið nokkuð meira í 
		sviðsljósi nú en áður og telja sumir gjörð þeirra hið versta mál en þar 
		er ritari þó á allt öðru máli. Telur sumsé að það hafi verið einstök 
		gæfa íslenskrar þjóðar að þeir skyldu sjálfviljugir hafa sent frá sér 
		þessa einstöku staðfestingu á erindisleysu sinni í dómarastörf fyrir 
		aðra en flokkinn og frændur.  
		
			Hæstiréttur hristi jörð - 
			- heppni var það Íslands manna 
			því að hér kom hinsta gjörð 
			hæstaréttardómaranna.  
		 
		Það færi betur á því að þeir létu verða af því að 
		einhenda sér á sín feitu eftirlaun því að 
		
			Tæpt er að frónska fólkið þá 
			finni það mikinn létti 
			að handbendi flokks og frænda má 
			finna í Hæstarétti. 
		 
	 
	 | 
  
  
    | 2010-05-30 | 
    Sunnudagur 30. maí 2010 - Jón Gnarr 
	komst inn í Reykjavík við sjötta mann
		Frábært er að Reykvíkingar hafa nú ráðið háðfuglinn 
		Jón Gnarr í fasta vinnu til fjögurra ára. Hann mun að sjálfsögðu fylgja 
		því eftir sem hann hefur lofað.  
		Við hirðir konunga voru trúðarnir  
		snjallastir. Þeir komu gagnrýni fram og góðum ráðum að. Þetta hlutverk er 
		lífsrulla Jóns og í henni mun hann ekki bresta. Múturnar sem honum verða 
		boðnar munu ekki rata undir mottuna og eftir því sem honum verður hlaðið 
		í efra embætti mun háð hans verða beittara.  
		Hin skynsamlega leið annarra borgarstjórnarfulltrúa er að 
		taka nú flokkslausum höndum saman í stíl við Reykjavíkurlistann gamla. 
		Nú verða sjálfstæðismenn að vinna með - eða verða afskiptir. Allir verða 
		að taka höndum saman og una því að háðfuglinn haldi þeim á línunni. 
		Aðrir kostir verða þeim verri. 
		Þetta mun leiða til breyttra stjórnunarhátta, ógna 
		mútuferli, torvelda pólitíska sjálftöku og gera þá að athlægi sem reyna 
		að skreyta sjálfa sig verkum samstarfsins. 
		Þökk sé þeim sem studdu Jón Gnarr inn í þessa tilraun.
		 
		
			Fjórflokkurinn keyrð' í kjarr 
			krónuhöndum fórnar. 
			Jöfnun fylgi Jóni Gnarr 
			- jesú borgarstjórnar. 
		 
	 
	 | 
  
  
    | 2010-03-06 | 
    Laugardagur 
	6. mars 2010 - Þjóðkjörið sem breytti forsendum
		Ákvörðun forsetans kveikti viðbrögð hjá viðsemjendum 
		sem komu til móts við hag Íslands með tilboði um lækkun vaxta. Umfjöllun 
		varð ekki lokið. Hún er þó komin nógu langt til að fyrirliggjandi 
		kosefni er komið út af borðinu. Það er því ekki annað kosta en 
		sitja heima eða segja NEI. Vona svo að hið 
		allra fyrsta verði gengið frá hinum hagstæðari samningi.   
	 
	 | 
  
  
    | 2010-01-07 | 
    Fimmtudagur 7. jan. 2010 - 
	Forsetinn er maður ársins 2010
		Þjóðkjör verður að gefa kjósendum skýra kosti. Ef JÁ - 
		þá þetta. Ef NEI - þá þetta.  
		Ég sá ekki NEI-kostinn og taldi því að ekki kæmi til 
		þjóðkjörs. Ég hafði hins vegar fulla trú á forsetanum sem hefur staðið 
		sig frábærlega.  
		Gaman væri að hlusta á þann sem segðist mundu hafa 
		hagað sér öðruvísi á næstliðnum árum í forsetans sporum - vel að merkja 
		- að því gefnu að sá hinn sami hefði til að bera sömu góðu tengsl og 
		afburða færni í samskiptum við stjórnendur og áhrifamenn annarra þjóða. 
		Vissulega gæti hann þó hafa verið í vildarliði þáverandi 
		seðlabankastjóra og því fengið réttar upplýsingar um stöðu bankanna en 
		ekki verið mataður á blekkingum frá fyrstu hendi í bankanum og 
		ríkisstjórn. Það er nefnilega af sú forna tíð þegar fastráðnir 
		ríkisstarfsmenn þurftu að sverja forseta lýðveldisins hollustueið.
		 
		Vísun forsetans til ákvörðunar þjóðarinnar er að vísu 
		með gráan NEI-kost - en hefur afar margar góðar afleiðingar.  
		
			- Fjórðungur atkvæðisbærra skoraði á forsetann. Það 
			er gott að unnt er að koma almannavilja á framfæri við forsetann sem 
			er eina vörn hins ókosna. Afnám þess kosts yrði kolfelld í 
			þjóðkjöri.
 
			- Á alþingi hefur nær helmingur þingmanna hamast 
			með svigurmælum á stjórninni og fullyrt um vanhæfi hennar til alls. 
			Stjórnin sé svikari og gangi erlendra erinda. Engin orð í úldnustu 
			ruslakistu íslenskunnar voru ónotuð í þeim málflutningi. Meira að 
			segja fundust talsmenn annars stjórnarflokksins í þessum hópi. Það 
			var því eðlilegt að stuðningsmenn þessara talsmanna væru tilbúnir að 
			fylgja heitingunum eftir með því að skrifa undir áskorun að vísa 
			málinu til þjóðkjörs. 
 
			- Forsetinn vísaði málinu til þjóðkjörs.
 
			- Nú hefur tónninn í stjórnarandstöðunni snúist 
			við. Nú segir hún að auðvitað hafi aldrei annað staðið til en að 
			greiða ísbjörgina Icesafe. Nú er öllum ljóst að hver mótmælandi á 
			þingi hefur tekið þátt í samæfðu leikriti flokki sínum og persónu 
			sinni til framdráttar en samt sem áður vonast til að lögin yrðu 
			samþykkt. 
 
			- Nú vill stjórnarandstaðan bjóða fram krafta sína 
			til að leysa málið. Hvaða lausn er ófundin? Lögin voru sett til að 
			undirstrika að ísbjörgin yrði greidd. 
 
			- Þjóðarpúlsinn hefur vaknað af dvala og sá 
			meirihluti gegn lögunum sem fyrir var er nú orðin að engu. Ljóst er 
			að lögin verða samþykkt í þjóðkjörinu. 
 
			- Koma mum í ljós að þjóðin áttar sig á því að 
			starf í stjórnarandstöðu er ekki starf fyrir þjóðina. 
			Stjórnarandstaða starfar einungis fyrir tvo aðila: flokkinn sinn - 
			að hann fá fleiri atkvæði - og persónu sína - að hún nái endurkjöri. 
			Þegar ekki er unnt að hreykja sér af eigin ágæti er eina leiðin að 
			rægja þá sem stjórna. Algjör undantekning er að finna á þingi 
			einstakling sem ætíð hugsar fyrst um þjóðarhag. 
 
			- Það mun fara svo sem forsetinn ályktar: Þjóðin 
			kemur samhentari út úr þjóðkjörinu. 
 
			- Því miður mun flokkshyggjan og sjálfshyggjan samt 
			ekki dala hjá þingmönnum og áfram verður það tálsýn að unnt sé að fá 
			þá til að starfa saman að þjóðarhag. 
 
			- Forsetinn er maður ársins 2010.
 
		 
	 
	 | 
  
  
    | 2009-12-08 | 
    
	Þriðjudagur 8. des. 2009 - Umhverfisskúffan hrekkur upp við vondan draum 
	  
	Þetta er merkileg frétt sem ekki þarfnast 
	neinnar skýringar.  
	Það má þó velta vöngum yfir fyrsta lögmáli 
	allra stofnana - sem einmitt er þetta: að undirstrika mikilvægi sitt til 
	þess að stækka til þess að fá aukið fjármagn og ráða fleira fólk og byggja 
	fleiri byggingar og lifa af og undirstrika mikilvægi sitt ... .  
	 
	Vitleysan ríður ekki við einteyming. 
	 
	Auðvitað væri rétt að hætta þessu rugli. 
	Hætta að stefna í tugmilljarða fjáraustur til að gera hina ýmsu öræfahluta 
	að sérstökum stofnunum með landstjórnir og hirðir þeirra og sérstök lög og 
	löggulíki. Losa sig við þá utanveltu einstaklinga sem sitja í ýmsum stjórnum 
	og ráðum við að spinna upp aðferðir til að stela umferðarréttinum af lifandi 
	og óbornum Íslendingum.  
	Þess í stað á að gera það sem hefur miklu 
	meiri áhrif - og kostar ekki neitt: 
	
		- 
		
festa í lög að Ísland sé allt einn 
		þjóðgarður hvað svo sem öllum útlendum skilgreiningum líður, 
		  
		- 
		
færa yfirumsjón hans í skúffu í 
		menntamálaráðuneytinu  
		- 
		
lögbinda kennslu í öllu skólakerfi 
		landsins um umgengni í þjóðgarði og liðsinni við þá sem minna kunna,
		  
		- 
		
kenna öllum landsmönnum að fara um allan 
		þann þjóðgarð sjálfum sér og öðrum til gagnkvæms yndis.   
	 
	 | 
  
  
    | 2009-10-24 | 
    24. okt. 2009  - Heiðarleg og 
	afdráttarlaus játning í leiðara Morgunblaðsins 
	  
	
		Forsætisráðherra Íslands árin 1991 - 2004 skrifar þennan 
	merkilega texta laugardaginn 24. október árið 2009. Þá hefur Íslendingum 
	verið það dagljóst í heilt ár að ótrúlega hörmulega hefur tekist til með 
	fjárhagslega yfirsýn stjórnvalda næstliðinn áratug. Gerð voru fjölmörg 
	mistök en ráðamenn þjóðarinnar litu í önnur horn á ögurstundum.  
		Í þessum leiðara Morgunblaðsins segir sá sem þá sat í 
	hásæti ríkisins að um hans hendur hafi allir fjármálaþræðir runnið og ekkert 
	verið aðhafst sem skipti þjóðina meginmáli annað en það sem hann ákvað. 
	Þetta er sannarlega heiðarleg og afdráttarlaus játning á eigi afglöpum. 
		Þó er athyglisvert að í lokin er hnýtt í eftirkomandi 
	forsætisráðherra sem hagar málum eins og hann telji sig ekki öllum öðrum 
	snjallari í meðferð fjármála. Það liggur við að sá grunur vakni að játning 
	hins seka hafi bomsast út úr honum - alveg óvart.  
		
			Textinn virkar afvega -  erum við nú með - hér: hann sem iðrast ærlega - eða blaðrar af sér? 
		 
	 
	 | 
  
  
    | 2009-07 | 
    Júlí 2009 - við lok 
	alþingisumræðunnar um IceSafe. 
	 Hópur fólks sem nefndi sig Indefence hafði í nokkru 
	flaustri boðað til útifundar gegn ríkisstjórninni og væntanlegri niðurstöðu 
	málsins. Sjálfstæðisflokkurinn kallaði út allt sitt lið að mæta. Þegar boðið 
	var út gengið leit út fyrir að Alþingi tæki þverpólitíska afstöðu í málinu. 
	Þá voru góð ráð dýr. Boðuninni til mótmælafundar var nú breytt í boðun til 
	samstöðufundar með alþingi. 
	
		Nú er íhaldsliðið lens! 
		Landsmenn er að biðja 
		um að hjálpa Indefence 
		alþingi að styðja! 
	 
	   | 
  
  
    | 2009-04-26 | 
    Sunnudagur 
	26. apríl 2009 - þegar atkvæðin hafa skilað sér úr kjörkössunum
		Um siðferðisbresti Ríkissjóður geymir mikið fé. Það er mitt fé. Helst mundi ég ráðstafa því 
	sjálfur. Sú leið er fáum fær. Við hin leitum trausts fulltrúa til verksins. 
	Gott er að vita að hann er verksamur og þekkir til starfsins en mestu 
	skiptir hvort hann er traustsins verður. Eru vísbendingar um að hann gefi 
	kost á sér til að hagnast sjálfur? Er fjölskyldufyrirtæki að gera hann út? 
	Gengur hann erinda hópa, flokka eða fyrirtækja? Hefur hann orðið uppvís að 
	viðtöku fjár á eigin reikning?  
		Allir vita að faguryrði slíks manns eru aðeins hluti af 
	blekkingaleik. Ekkert gerir hann hæfan nema hann opni alla sína 
	fjármálasögu. Detti hann í að heimta að umræðan skuli aðeins snúa að 
	framtíðinni og komandi verkefnum er okkur ljóst að hann hefur ósagðar 
	áætlanir sem ekki eru vænlegar fyrir heildina. Komist hann til áhrifa mun 
	hann að lokum segja - því miður, ég vildi vel en raunveruleikinn tók af mér 
	völdin - og - já - ég varð sjálfur ríkur - alveg óvart - og auðvitað fengu 
	vinir mínir og börnin mín æðstu stöður samfélagsins - ekki eiga þau að 
	gjalda mín.   
		Erfitt er að vita upp á hár að einstaklingur eða 
	stjórnmálaflokkur hafi óhreint mjöl í pokanum. Til þess þarf maður að vita 
	með vissu að hann hafi tekið við peningum frá aðila sem hefur hagsmuni af 
	veru hans í aðkepptri stöðu. Það er viðtaka fjárins sem er samningurinn. 
	Umfram það er engra orða þörf.  
		Tvo kosti á sá sem staðinn er að viðtöku fjár án þess að 
	upplýsa um það. Hann getur lagt öll spil á borðið og reynt hið ómögulega - 
	að sanna að hvergi hafi málum þokað í hag þess sem greiddi og að það hafi 
	ekki staðið til. Hinn kosturinn er að sjá ekki að hér er um siðferðisbrest 
	að ræða.  
		Þegar litið er yfir siðferðisbresti stjórnmálamanna og 
	sérstaklega ráðherra næstliðinna áratuga kemur skilmerkilega í ljós að 
	enginn veit um siðferðisþroska þess einstaklings sem valinn er til 
	fyrirsvars. Að lokum er enginn kostur á réttlátri málsmeðferð. Sá einn á 
	framgang sem kemst í vinahópinn. 
		Við lifum í samfélagi sem ekki kennir þegnum sínum 
	viðmiðunarreglur siðferðisins. Þetta á raunar við um öll þróuð 
	samfélög. Siðferðisþroskinn fær á sig sömu dulúðina og trúmálin og verður að 
	helgidómi sem öðrum komi ekki við. Í raunveruleikanum er siðferðisþroski 
	leiðtogans mikilvægastur og þar eiga fjölmiðlar að fara í saumana. 
		 
		Það sem við viljum er traustur maður sem fórnar sér í það 
	verkefni að leiða samfélagið til vegar og gleði. Mín vegna þarf ekki að 
	spyrja hann hvað hann muni gera ef þetta og þá þetta og þá kannski þetta 
	gerist. Hann mun áreiðanlega finna aðra trausta sér til aðstoðar þegar að 
	óvæntu kemur.  
		Þannig eru ferðir.  
		
			Kjörið loksins komst á blað  - koðnar mörgum brosið. Það er ljóst af þessu hvað þjóðin hefur kosið. 
		 
	 
	 | 
  
  
    | 2009-01-26 | 
    Mánudagur 26. janúar 2009 - 
	Forsetinn truflaði valdhringinn
		Forsetinn 
	truflaði sjálfskipaða eigendur íslenska valdsins. Benti á að til þingrofs þarf undirskrift 
	og eftirfylgd 
	forsetans sem setur og slítur þingum. Þingrof hafa verið misnotkunar-trompás í 
	ermi forsætisráðherra. Með þeim jóker gat hann komist hjá að lenda í 
	minnihluta á þingi. Gat enn mulið undir eigin flokk og komið í veg fyrir 
	aðra kosti. Forsetinn færði þá valdamisnotkun úr seiling uppgjafa forsætisráðherra 
	framtíðarinnar ef annar þingmeirihluti er 
	reiðubúinn til stjórnar. 
		
			Forseti Íslands á almanna lof og aðdáun sanna: aftekur misnotuð alþingisrof undanhaldsmanna. 
			 
		 
	 
	 | 
  
  
    | 2009-01-26 | 
    Mánudagur 26. janúar 2009 - 
	kl. 16:25
		
			Mikill brestur buldi við bergmálar til fjalla endurómar rindarið: ríkisstjórn að falla. 
			 Auravina argalið óttaslegið stynur: allt fer hér á aðra hlið ef vort kerfi hrynur. 
			 Auralausir eiga stef: endast mun vor skerfur - land mun blómstra aftur ef auraliðið hverfur. 
			 
		 
	 
	 | 
  
  
    | 2008-12-05 | 
    Föstudagur 5. 
	des. 2008 Snarsvar um lágnætti við fyrirspurn Íslendings erlendis um stöðuna hér 
	heima. 
	
		(Date: Fri, 5 Dec 2008 00:15:24) 
		
			Íslendingar eiga margt um sem mætti ræða enda fólkið orðið argt - á sumt fátt að snæða. 
			 Höfðingjar sem hafa þá höfgan lax í munni þykjast kenna kjörin hjá kreppualþýðunni. 
			 Þykjast sjálfir þekkja best þjóð að vísa leiðar þótt þeir engan hafi hest hvað þá tvo til reiðar. 
			
  Grípa skjótt til gæsa - því gengur flest með asa - fengnum troða ofan í einkavinavasa. 
			 Þegar ekki fleira finnst fer til hags að sverfa þá - er varir margan minnst - mál þeim er að hverfa. 
			 Eftir stendur undraþjóð eignum sínum rúin skuldahlekkjuð, göngugóð, greiðslan aldrei búin. 
			 Myrkt er úti, nú er nótt, nauðafólk er hokið. Sælu vinir, sofið rótt. Sálminum er lokið. 
		 
		Bestu kveðjur - GÓP  
	 | 
  
  	
    | 2008-11-13 | 
    13. nóvember 2008 - 
	Þjóðarskútan 6 vikur á strandstað
		Nú er svo komið að meira að segja okkur - hin fávísu - er farið að óra 
	fyrir hrikalegu umfangi efnahagshrunsins. Frá aldamótum hefur bankageirinn 
	vaxið eins og trekt frá þrengri enda og þegar bólan sprakk náði víðari 
	endinn yfir tólffalda ársframleiðslu landsins.  Það furðulega var - að 
	þessu fylgdi alls engin eignaaukning í útlöndum. Þvert á móti. Allt byggðist 
	á sífellt aukinni skuldsetningu. Og - það var innlenda vaxtaokrið sem hélt 
	bílífinu uppi. (Sjá
		Andrés Magnússon og gögnin úr Seðlabankanum.) 
		Stjórnmálatoppar, eftirlitslið peningamála og fjáraflamenn voru í vina- og 
	skelfingarvef með öndina í hálsinum. Stranglega bannað að sjá boðana. Gæta þess að engan óviðkomandi gruni neitt. Ef 
	við hefðum þrengt reglur þá hefði nú eitthvað verið sagt - sagði 
	forsætisráðherrann - sem síðan hefur einnig leitað á náðir ofurverunnar. 
	Hugsanlega hefði getað verið vitrænt - að sækja um inngöngu í EB 
	þegar útlitið var skást - en krónan varð fyrirskipað átrúnaðargoð. 
		 
		Þeir sem stóðu vaktina hafa nú breytt sér í björgunarlið. 
	Það er við gamla heygarðshornið. Hugsar fyrst og 
	fremst um eigið skinn. Þar ræður vinavefurinn og flokkshagsmunir. Allir 
	rúnir almannatrausti. Uppstokkun í stjórn dugar ekki. Það verður að kjósa, 
	halda vinavefnum fjarri og kalla fagfólk til.   
		
			Ofan sligar Íslandsknör áralangur vandi, - okkar frækna yfirför endaði með strandi. 
			 Sigið er nú siglutréð sest er þjóðarskúta og við segjum: útaf með 
			óráðsíu-stúta! 
		 
	 
	 | 
  	
	
    | 2008-ö6-09 | 
    9. júní 2008 - Lokið er nú 
	Baugsmálaferlum. 
	
		Þau hafa staðið yfir í nokkur ár. Að lokum komst 
		Hæstiréttur að því að víst hefðu menn tekið sér ólögleg lán úr eigin 
		hendi upp á ríflega 200 milljónir. Refsing við slíku væri aðeins sekt og 
		því væri það fyrnt. Eftir stóðu dómar um misferli og sjálftöku lægri 
		fjárupphæða. Verjendur sögðu að mestu skipti hversu þetta væri lítið 
		miðað við það afl sem lagt hefði verið í málið. 
		
			Dæmdur maður dögun sér - dómurinn var grófur 
			- var þó löngu ljóst: hann er langtum minni þjófur. 
		 
	 
	 | 
  	
	
    | 2008-05-15 | 
    15. maí 2008 - Fjármálageirinn á 
	hverfanda hveli.  
	
		Bankinn minn, hann Glitnir, var ólmur í að ráða sér 
		nýtt starfsfólk allt fram á þetta vor. Stórar væntingar og mikil 
		starfsheit til fólks sem starfaði annars staðar. Byrjaði samt að segja 
		upp fólki nokkru fyrr. Sagði svo einnig upp fólkinu sem síðast var 
		blekkt til samstarfs. Svona haga sér einungis ómerkilegir 
		atvinnurekendur.  
		
			Fjárgeirinn slappi og slitni  sleginn af 
			raununum 
			 - glataðist trúin á Glitni  gloprandi mannauðnum. 
			 
		 
	 
	 | 
  	
  
    | 2008-05-09 | 
    9. maí 2008 - Um dauðasyndir
		Upp hafa komið 
	allmörg mál, í því nágrenni sem kallar sig siðað, þar sem gerendur hafa 
	framið verknað sem aðeins verður talinn til dauðasyndar.  
		
			Dauðasynd er öngin ein úr má hvergi bæta afsökun er ekki nein - aðeins hægt að þræta. 
		 
	 
	 | 
  
  
    | 
	2008-02-09 | 
    
	9. febrúar 2008 - 
	Pólitíkurmarkið 
	
		Íhugun um ósannindaáráttu ritsjóra 
	Morgunblaðsins í garð fyrrverandi borgarstjóra: 
		
			Nú á Morgunblaðið bágt - blakar trénu ranga - betra finnst að lúta lágt: lætur þvælu ganga. 
		 
	 
	 | 
  
  
    | 
	2007-07-16 | 
    
	 16. júlí 2007 - Hagnýting uppmagnaðs ótta 
	
		Koldíoxíð virðist vaxa með hækkandi 
	hita andrúmslofts - en vöxturinn er sex öldum á eftir. Nú hefur verið sett 
	upp svikamylla til að hala peninga til skógræktar af nytsömum sakleysingjum 
	undir því yfirskini að koldíoxíð sé ekki afleiðing - heldur orsök hlýnunar! 
	Sjá nánar í umfjöllun 
	loftslagsvísindamanna. Í leiðinni er sakleysislegri nauðsynjablæju sveipað 
	um það háttalag að ræna almenning landsvæðum og troða þar upp skógi - sem 
	hver á? 
		
			"Nígeríu"-nafnið er nets á svikum mestum - "Kolviðurinn" keppir hér: kunnuglegri flestum. 
		 
	 
	 | 
  
  
    | 
	2007-01 | 
    
	 2007 Mbl 
	>> Útísláttur fyrirpilta 
	6. jan. Dómsmálaráðherra Björn Bjarnason  
	16. jan. Guðni Th. Jóhannesson  
	17. jan. Jón Ólafsson  
	19. jan. Björn Bjarnason  
	21. jan. Þór Whitehead  
	
		Ljóst er að það slær út í fyrir mörgum embættispiltinum 
	þegar kalda stríðið er til umfjöllunar. 
		
			Herrans orð er álfaþref.  Íslendingar kíma er þeir lesa bunubréf - börn síns kalda tíma. 
			
  Spottið veit að spennu veldur sparðatínslustritið - Þór hinn aldni ekki heldur alltaf sté í vitið. 
		 
	 
	 | 
  
  
    | 
	2006-12-20 | 
    
	 20. des. 2006 - Tekinn upp 
	þráðurinn 
	
		Um þessar mundir er 
	Framsóknarflokkurinn níræður. Hann hefur rýrnað bæði að atkvæðahlutdeild, 
	fjölda kjörinna fulltrúa og tiltrú kjósenda. Í Reykjavík er þó kominn til 
	stjórnunarstarfa síðasti Móhíkaninn sem raðar vinum og pólitískum samherjum 
	á jötuna.  Það nefna sumir afturgengna háttsemi. 
		
			Aftur gengur frammaranna far -
		forni tónninn þekkir stillinguna: nýr og stæltur stjóri Framsóknar sterkur kemur inn í spillinguna. 
		 
	 
	 | 
  
  
    | 2005-12-15 | 
    15. des. 2005 - Miklu minni þrjótur  
	
		Árni Magnússon er félagsmálaráðherra. Atferli hans við Valgerði Bjarnadóttur 
	var í Hæstarétti Íslands dæmt refsiverð háttsemi og misbeiting valds. Hann 
	hefur ekki hugleitt að segja af sér - eins og hann orðar það sjálfur. 
	Framsóknarflokkurinn stendur með honum í því - þótt einungis formaður 
	þingflokksins og formaður flokksins hafi tekið til máls um það. 
		
			Þingandstaðan fram nú fer fjasandi með blaður en þjóðin veit að Árni er alveg saklaus maður.  
	 
	 | 
  
  
    | 2002-12-14 | 
    14. des. 2002
		
			Ísland - þar sem allir hugsa sitt - og er menn standa frammi fyrir vanda veit hver og einn að arfa-rangt er hitt! Aðeins ég á réttu hef að standa! 
		 
	 
	 | 
  
  	
    | 
1999-05-11 | 
    
11. maí 
	1999Eftir 
	alþingis- 
	kosningar 
	8. maí  | 
Hugleiðing
Undanfarin 16 ár hafa atkvæði Íslendinga
fallið eins og taflan sýnir:
Athugaðu að litirnir eru eingöngu til aðgreiningar.  
Ónákvæmni um þá sem ekki kusu er hér áætluð innan við 1%. Það er
ályktað af árinu 1999. Þá voru 201.525 á kjörskrá á landinu öllu. Af
þeim kusu 169.431 eða 84,07% sem merkir að þeir sem ekki kusu
voru 15,93%. Hins vegar hafa samtals 3.705 manns komið á kjörstað
og skilað auðu eða ógildu atkvæði en það eru 1,84% þeirra Íslendinga
sem hafa atkvæðisrétt. Þar með er flokkur þeirra sem ekki kaus og
kaus en skilaði auðu orðinn 17,76%. Í úttekt Mbl. í dag, 11.05.1999,
er hins vegar notuð talan 16,9%. Sú tala sem og aðrar kjörsóknartölur
sem Mbl reiknar með svipuðum hætti eru notaðar í þessari töflu. Í
umfjöllun Mbl eru hins vegar þeir þurrkaðir að öðru leyti út úr tilverunni
sem ekki kusu og einnig þeir sem skiluðu auðu.  |   
| Kosningaár: | 
 1983 | 
 1987 | 
 1991 | 
 1995 | 
 1999 |  
| Kusu ekki: | 
 13,40% | 
 10,40% | 
 12,40% | 
 12,70% | 
 16,90% |  
| Sjálfstæðisfl | 
 33,51% | 
 24,37% | 
 33,81% | 
 32,39% | 
 33,82% |  
| Borgarafl | 
   | 
 9,77% | 
   | 
   | 
   |  
| Frjálslyndi fl | 
   | 
   | 
   | 
   | 
 3,49% |  
| Framsóknarfl | 
 16,89% | 
 16,93% | 
 16,56% | 
 20,34% | 
 15,29% |  
| Kvennalisti | 
 4,76% | 
 9,05% | 
 7,27% | 
 4,28% | 
   |  
| Samfylking | 
   | 
   | 
   | 
   | 
 22,27% |  
| Alþýðufl | 
 10,13% | 
 13,62% | 
 13,58% | 
 10,01% | 
   |  
Bl jafnm '83 
Þjóðvaki '95 | 
 6,32% | 
   | 
   | 
 6,29% | 
   |  
| Alþýðubl | 
 14,98% | 
 12,01% | 
 12,61% | 
 12,48% | 
   |  
| Vinstri-gr | 
   | 
   | 
   | 
   | 
 7,56% |  
| Önnur framboð | 
   | 
 3,85% | 
 3,77% | 
 1,51% | 
 0,66% |  
| Samtals: | 
 100% | 
 100% | 
 100% | 
 100% | 
 100% |   
Formið
 | 
Á alþingi Íslendinga sitja 63 alþingismenn. Þeir starfa saman í einni
málstofu. Minnsta starfhæfan meirihluta þingmanna mynda 32.
Þingmenn eru kjörnir til fjögurra ára í senn. Þingið getur hvenær sem
er ákveðið að leysa sig upp og láta kjósa á ný. Alþingi kýs ráðherra
sem fara með framkvæmdavaldið. |  
8. maí 1999
 | 
Niðurstaða kosninganna er þessi - í listabókstafaröð:
  - B - Framsóknarflokkur 12 þingmenn - missir 3
 
  - D - Sjálfstæðisflokkur 26 þingmenn - bætir við sig 1
 
  - F - Frjálslyndi flokkurinn 2 þingmenn. Nýr flokkur.
 
  - S - Samfylkingin 17 þingmenn.
 
  - U - Vinstri - grænir - 6 þingmenn.
 
 
S var áður Alþýðuflokkur og Þjóðvaki, stærri hluti Alþýðubandalags
svo og hluti Kvennalista og U var áður minni hluti Alþýðubandalags
og hluti Kvennalista. Samanlagt höfðu þessir fjórir flokkar áður
jafnmarga þingmenn og S og U hafa nú - þ.e.: 23.  |  
B-listinn
 | 
Framsókn lofaði milljarði í fíkniefnabaráttuna án þess að hækka skatta
og tapaði fylgi - sérstaklega í heimahéruðum ráðherranna. Hins vegar
hefur formaður flokksins ákveðið að taka það ekki sem gagnrýni á
ráðherrastörfin heldur hér sé um að ræða afleiðingu af ómerkilegu
persónuníði í kosningabaráttunni. Þá var því nefnilega lyft til tals að
hann er erfingi að verulegum hluta í útgerðarfyrirtæki. Hann hefur því
um áratugaskeið ráðskast með stjórnun fiskveiða þar sem hann á
persónulegra hagsmuna að gæta en samkvæmt nýlegum
stjórnskipunarlögum er það óheimilt - til að taka af öll tvímæli. Á
Vestfjörðum vann flokkurinn á. Það mundi væntanlega merkja að
ávinningurinn hefði orðið stórkostlegur ef þetta hefði ekki uppgötvast
um formanninn. Þar fór fram fyrir flokkinn maður sem þar til fyrir
skömmu var þar þingmaður fyrir Alþýðubandalagið. Sá hlýtur að vera
ofarlega á blaði sem næsti formaður!? |  
| D-listinn | 
Lofaði áframhaldandi góðæri og tækifærum fyrir alla og varaði við
skattahækkunum ef aðrir næðu völdum. Formaðurinn sást lítt í
sjónvarpi fyrr en á lokasprettinum og varð þeim mun vinsælli sem hann
lét lengur eftir sér bíða. Flokkurinn vann góðan sigur og viðbótarmenn
í Reykjavík og á Reykjanesi en missti mann úti á landi sem áður hafði
verið inni á nokkurri hendingu.   |  
F-listinn
 | 
Sverrir Hermannsson kom tveimur mönnum á þing. Framboð hans
kom manni inn á Vestfjörðum og uppbótarmanni í Reykjavík. Þetta
tókst þrátt fyrir stórfyrirsagnir DV á lokadögum kosningabaráttunar
um að skoðanakannanir sýndu engan þingmann fyrir F-listann. Segja
má að þetta hafi verið mesta kosningaspár-bommerta sem DV hefur
verið staðið að. Þetta er þó í nokkru samræmi við hatramman
málflutning DV í garð Sverris Hermannssonar þrátt fyrir að löngu
hefur í ljós komið að hann hafði á engan hátt farið fram í
Landsbankanum öðruvísi en bankaráðið hafði ákveðið. 
  |  
S-listinn
 | 
Stjórnendur Alþýðuflokks og Alþýðubandalags gerðu sér vonir um að
sem flestir fyrri fylgjendur flokkanna og Kvennalista gengju saman til
átaka undir merki Samfylkingarinnar þótt aðeins einn af þremur
þingmönnu Kvennalista styddi það. Strax í upphafi var ljóst að fjórir
þingmenn Alþýðubandalagsins og einn þingmaður Kvennalista mundu
bjóða sig fram gegn þessu samstarfi. Einn þingmaður
Alþýðubandalags fór í forystu fyrir Framsókn á Vestfjörðum en hinir
þrír stofnuðu Vinstri-Grænt og buðu fram U-listann. Eftir atvikum er
ekki unnt að segja annað en S-listinn megi vel við una og á fyrir
höndum að ganga betur frá sínum skipulagsmálum. |  
U-listinn
 | 
Þrír þingmenn Alþýðubandalagsins og einn þingmaður Kvennalistans
stofnuðu Vinstri-Græna-flokkinn og reru á sín þekktu mið. Þeim gekk
vel þó í ljós kæmi ágætlega að vinstri er ekki sama sem grænt. Strax í
upphafi auglýsti talsmaður þeirra að eina sérkenni flokksins, Ísland úr
Nato og herinn burt, mundi ekki verða dregið upp úr brjóstvasanum ef
til stjórnarmyndunarviðræðna kæmi. |  
Þeir sem  
ekki kusu 
og 
þeir sem 
skila 
auðu
 | 
Þessi flokkur hefur farið stækkandi. Til stækkunar hans má tína ýmis
rök. Það er þó sérstaklega athyglisvert hversu mjög hann stækkar að
þessu sinni. Nú eru í honum fleiri en allir kjósendur Framsóknar og
þeir eru jafnmargir helmingi kjósenda Sjálfstæðisflokks! Hvað veldur
þessari miklu aukningu?
 Fjöldi þeirra sem ætluðu á kjörstað en komust ekki vegna veikinda,
fjarveru, gleymsku eða af öðrum tilfallandi ástæðum er í réttu hlutfalli
við fjölda þeirra sem komu og kusu og í réttu hlutfalli við útkomur
framboðanna. 
Fjöldi þeirra sem áður hafa kosið en gátu nú ekki gert upp hug sinn er
hins vegar ekki í réttu hlutfalli við útkomur framboðanna. Þannig var
enginn munur á skilgreiningu Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks
frá því sem var fyrir fjórum árum. Að langmestu leyti má segja það
sama um Vinstri-Græna sem reru á vel skilgreind mið með þekktum
frambjóðendum og höfðuðu til þess fylgis sem þeir áður höfðu haft til
sömu málefna. Staða Samfylkingar var verulega frábrugðin því sem
áður var. Tveir flokkar sem í hálfa öld hafa barist hatrammast hvor
gegn öðrum og frambjóðendum hvors annars óskuðu nú eftir því að
fylgjendur sínir kysu einmitt þá frambjóðendur sem síðast voru kallaðir
óalandi og óferjandi. Það hlýtur að hafa orðið mörgum gömlum
kjósanda erfitt að gera upp hug sinn enda þótt honum flygi ekki til
hugar að kjósa einhvern annan flokk. Þar með hefur valkosturinn kýs
ekki og valkosturinn skila auðu orðið nærtækari þessum hópi. Gildi
þessara hugleiðinga kemur auðvitað ekki í ljós fyrr en aftur verður
kosið. Ef Samfylkingin hefur þá náð að styrkja skipulag sitt og færa
framboðsþyngdina á nýjar persónur með samræmdri málefnafylgju þá
ætti hún - samkvæmt þessum hugleiðingum - að eiga möguleika á að
heimta sinn hluta úr flokki þeirra sem kjósa ekki og þeirra sem skila
auðu.  |  
Stjórnar- 
myndun
 | 
Þó að Sjálfstæðisflokkurinn geti stærðar sinnar vegna myndað
meirihluta með hverjum hinna sem er - utan Frjálslyndra - þarf fleira að
skoða. Ekki er fyrirsjáanlegt að Vinstri-grænum þyki slíkt hæfilegt.
Samfylkingin er nú orðin svo stór að hún getur ekki bara sisona
hoppað til samstarfs við höfuðóvininn. Það mundi enda gefa VG byr
undir báða vængi í næstu kosningum. Þess utan mundi stjórnarseta
Samfylkingarinnar reyna mjög á það innra skipulag hennar sem enn er
ekki fullfrágengið. Það er því einungis einn raunverulegur kostur fyrir
Sjálfstæðisflokkinn. Hann er sá að fá Framsókn til samstarfs. |  
F - lykillinn
 | 
Framsóknarflokkurinn er í algjöru lykilhlutverki nú. Staða hans hefur í
raun batnað við það að jafnaðarmannaflokkurinn hefur stækkað. Þetta
er dálítið skemmtileg þversögn við þá staðreynd að allir íslenskir
stjórnmálaflokkar eru í raun krataflokkar.
 Framsóknarflokkurinn er kominn í þá stöðu sem hann var stofnaður til
að gegna:  Engin stjórn verður mynduð án þess að hann komi til. 
  
Þessi er staða Framsóknarflokksins einnig í bæjarfélögum.
Framsóknarflokkurinn er afar skynsamleg eining fyrir það fólk sem
hefur áhuga á stjórn samfélagsins. Hann er ekki mjög stór en staða
hans er slík að hann hefur mun fleiri fulltrúa í stjórnum og ráðum og
nefndum og embættum heldur en aðrir stjórnmálaflokkar.  |  
F - hvað ?
 | 
Eðlilegt er að íhuga stöðu Framsóknar. Það er alls ekki hlutverk
hennar að gera einn flokk svo öflugan að hann geti síðan stjórnað án
þátttöku Framsóknar. Þvert á móti. Það er hlutverk hennar að halda
fylkingunum tveimur svo stórum að þær geti ekki unnið hvor með
annarri. Það er hlutverk hennar að sjá til þess að enginn geti stjórnað
án tilstyrks Framsóknar. Þess vegna er það oft hlutverk Framsóknar að
koma sorgbitin til búðar samstarfsflokksins - eftir kosningar - og segja
því miður er staðan nú slík að flokksmenn hafa ákveðið að við
reynum samstarf á hinn veginn. Þar með dettur öll sól af silkihúfum
fyrrum samstarfsflokks og færi gefst til að láta skína á húfur hins. |  
F + S + U
 | 
Það er fremur eðlilegt að formaður Framsóknarflokksins verði
forsætisráðherra í þessu stjórnarmunstri. Vinstri flokkarnir slá af
hugsjónum sínum og stefnumiðum til að stjórn komist á. Frá sjónarhóli
Framsóknar er er það hins vegar allt í lagi að slík stjórn springi áður en
kjörtímabilið er á enda því þegar gengið verður til kosninga er auðvelt
að sýna að það var hún sem var kjölfesta stjórnarinnar og hún fær að
lokum góða kosningu.  
 Nú kann hins vegar svo að vera að þessi leið strandi strax í
burðarliðnum. Það er vegna þess að sennilega hefur Samfylkingin ekki
nægan áhuga á stjórnarsetu til þess að slá umtalsvert af fyrirætlunum
sínum og stefnumiðum.  |  
F + D
 | 
Það er ekki sérstaklega aðlaðandi fyrir Framsókn að kynda enn undir
blárri ljómasól Sjálfstæðisflokksins og rýra um leið sinn hlut. Hins
vegar er ekki annað að sjá en að Framsókn sé neydd til að halda
áfram stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn eitt kjörtímabil enn. |   
       | 
  	
  	
    | 
      1998-07 | 
    
      Júlí 1998: Hjörleifur skjótur að segja sig úr
      Alþýðubandalaginu
		
			Mér er nú frekar að heyrast að Hjörleifur klingi! Hér er nú ekki verið að fara með væl! Hann er að sjálfsögðu orðinn þreyttur á þingi og þykir hæfa að fara þaðan með stæl!  
		 
       | 
  	
  
    | 
      1996-06-10 | 
    
      10. júní 1996 - Forsetaslagur
		
			Allur fjöldinn er svo gerður að hann fagnar ef-forseti okkar verður Óli Ragnar. 
		 
		 
	 | 
  
  	
    | 
      1993-10-24 | 
    
      24. október 1993
		
			HÍ, RK, Lottó-lið lagði hart að Steina: Spilakassa viljum við! Víst skal á það reyna! 
			Ráðstafar með ró og spekt RAUN til allra þriggja - sem er alveg ótrúlegt eftirá að hyggja: 
			Sjá hið spilasjúka man - með sjarm er loksins sköpuð af háskólanum aðstaðan uns aleigan er töpuð.  
		 
	 |