GÓP-fréttir
FKE-vefurinn
Kom inn!
Birtitexti
Fundir FKE á starfsárinu 2004 - 2005
* Hér verða tiltekin meginviðfangsefni funda félagsins. Nákvæmari umfjöllun geta félagsmenn fengið með því að glugga í fundargerðabækur sem eru í vörslu stjórnar.
24. ág.
2004
Ráðgerður er stjórnarfundur kl. 10-12 til að ganga frá til útsendingar atburðaskrá haustannar.
18. maí
2004
Stjórnarfundur. Stjórnin skipti með sér verkum. Hörður Zophaníasson tók að sér að gegna áfram störfum varaformanns, Hermann Guðmundsson að sinna áfram gjaldkerastörfum og Bryndís Steinþórsdóttir tók að sér ritarastarfið. Jóna Sveinsdóttir tók að sér skjalavörsluna og þær Birna Frímannsdóttir og Margrét G. Schram eru varamenn, mæta á alla stjórnarfundi og leggja þar sitt af mörkum til jafns við aðra.

Rætt var um sumarferðina. Tómas Einarsson tekur að sér fararstjórn í henni eins og öllum þeim sumarferðum sem farnar hafa verið á vegum FKE. Áætlað er að fara Kaldadal í Borgarfjörðinn, fara svo þar um sveitir og skoða sig um og heimsækja merkar slóðir. Koma svo heim eftir kvöldverð. Sjá hér nánari lýsingu.

Ákveðið að nota tölvupóst í verulegum mæli til að bera saman bækur sínar.

Ákveðið að senda út fyrirspurnir til félagsmanna í því Fréttablaði sem kynnir ferðina í ágúst.

15. maí
2004
Fundur var haldinn í Fiðlaranum á þakinu á Akureyri. 50 skráðu sig í fundarbók. Þetta var kynningarfundur um starfsemi FKE og fulltrúi LSR kom einnig á fundinn og skýrði samhengi eftirmannsreglu-eftirlauna við annars vegar kjarasamninga og hins vegar framkvæmd kjarasamninga úti í skólunum. Hvort tveggja hefur áhrif á upphæð þeirra eftirlauna sem eftirmannsreglan skilar.
  • Ólafur Haukur Árnason, fyrrverandi formaður FKE og sá sem stýrði öllum undirbúningi fundarins, setti fund og stýrði. Hann bauð menn velkomna og gerði stutta grein fyrir markmiði félagsins og starfsemi.
  • Sverrir Pálsson, fv skólastjóri Gagnfræðaskólans á Akureyri, las frumort ljóð.
  • Páll Ólafsson frá LSR skýrði tengsl launa eftir eftirmannsreglu við kjarasamninga og framkvæmd þeirra.
  • Kaffi í boði félagsins.
  • Þórarinn Guðmundsson, fv kennari við Gagnfræðaskólann  á Akureyri, las frumort ljóð úr bókum sínum.
  • Hörður Zophaníasson, fv skólastjóri, flutti minningabrot frá dvöl sinni í Barnaskólanum á Akureyri og Skátafélaginu á Akureyri.
  • Ólafur Haukur þakkaði og óskaði Akureyringum til hamingju með góð skáld og Herði fyrir áhugaverða og skemmtilega frásögn.
  • Gísli Ólafur Pétursson, formaður FKE, fór yfir starfsmarkmið félagsins. Hann benti þeim sem taka laun samkvæmt eftirmannsreglu á að hafa samband við Pál Ólafsson hjá LSR um útreikning þeirra en við stjórn FKE eða beint við Kjararáð KÍ ef þeir vildu koma á framfæri óskum um að kjarasamningum yrði breytt. FKE eflir félagslíf kennara é eftirlaunum og maka þeirra og efnir til skemmtiferða með þeim hópi. Hins vegar hvetti hann félagsmenn til að taka líka þátt í starfsemi annarra félaga á sama vettvangi sem kunna að reka öflugt starf á viðkomandi heimasvæði - til að gera sér aukna ánægju. Hann dreifði veffangi upplýsingasíðu FKE - sem er http://www.gopfrettir.net/open/fke
  • Vilberg Alexandersson, fv skólastjóri Glerárskóla á Akureyri, kvaddi sér hljóðs og þakkaði fyrir fundinn, bæði stjórn FKE og öllum öðrum og sérstaklega þeim Akureyrarmönnum sem störfuðu með honum að undirbúningnum.
  • Gísli Ólafur Pétursson tók undir þakkirnar til allra þeirra sem að fundinum stóðu, þakkaði gestum komuna og Ólafi Hauki sérstaklega fyrir hans hlut.
8. maí
2004
Aðalfundur - haldinn í Húnabúð að lokinni félagsvist. Ólafur Haukur Árnason, fráfarandi formaður, flutti skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu starfsári. Hermann Guðmundsson, gjaldkeri félagsins lagði fram og skýrði endurskoðaða reikninga félagsins sem voru samþykktir einróma. Nokkur endurnýjun varð í stjórn.

Efst á þessa síðu * FKE-vefurinn * Forsíða GÓP-frétta